Færsluflokkur: Matur og drykkur

Pepperoni og "Pepperóní"...

Sem námsmaður þarf maður oft að velta krónunni tvisvar eða þrisvar áður en henni er eytt. Ég geri þetta gjarnan í matarinnkaupum og versla því þar sem ég fæ besta verðið (sem er oftast í Bónus).

Sumt kaupi ég þó gæðanna vegna. Eitt af því sem ég leyfi mér að að nota pepproni á brauð. Og ég er vandfýsinn þegar pepperoni er annarsvegar.

Ég hef prófað allar innlendar gerðir pepperoni sem fást í stórmörkuðunum, en ekki hefur komið að því að ég kaupi erlendu (heilu) pepperoni-pylsurnar ennþá, enda svolítið meira magn en ég kem ofan í mig áður en þær skemmast.

Um daginn ákvað ég að kaupa Kjarnafæði-Pepperoni, enda er það auglýst sem hið eina sanna. Það er örlítið dýrara en samkeppnin, og stundum vill maður „aðeins betra“. Ég keypti bæði venjulegt KF-Pepperoni, og einn pakka sem merktur var "Extra sterkt, ekki fyrir viðkvæma".

Þar fóru á níunda hundrað krónur fyrir lítið. Báðir pakkarnir einkenndust af því sama. Pepperoni-skífurnar voru blautar af vatni, illa reyktar (of lítið reykt pylsa er mjúk og hálf hrá) og gersamlega bragðlausar. Ég hefði fengið meira „oomp“ út úr því að smyrja paprikuosti á brauðið en ég fékk út úr „Extra sterka“ pepperoni-inu.

Pepperoni er eins og nafnið gefur til kynna, piparpylsa. Í Kjarnafæðis-Pepperoniinu var fátt sem benti til þess að pylsan hefði nokkurntíman komist í kynni við pipar, nema ef vera skyldi á lokastigum framleiðslunnar, því eitt og eitt korn var að finna á pylsunni utanverðri. En piparbragð var ekki að finna.

Ég borgaði semsagt hátt í þúsund krónur fyrir hálfhrátt og illa kryddað kjöt í sneiðum.

Það er þó eitt gott við þetta. Ég veit á hverju ég á von. Þessi piparpylsa ratar ekki á mín borð aftur. 


Um bloggið

Bakþankar Námsmanns

Höfundur

Þór Sigurðsson
Þór Sigurðsson
Höfundur er Tölvunarfræðingur B.Sc. frá Háskólanum í Reykjavík, og M.Sc. nemi á sama stað.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Mislæg gatnamót
  • Honda Dylan 125
  • Piaggio Vespa ET4

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband