Allt á hvolfi, safnhaugurinn...

Það er mikið, Mikið, MIKIÐ að gerast þessa dagana, þessvegna er þessi færsla einskonar safnhaugur.

Ég er í þremur námskeiðum sem eru öll af hinu góða - þýðendur, gervigreind og ný tækni. Svo má náttúrulega ekki gleyma lokaverkefninu sem á ef vel á að vera að skila 35-40 vinnustundum á viku Shocking (til viðbótar við það sem fögin 3 taka).

Ekki skemmir fyrir að ég er loksins að komast aftur „heim“ tölvulega séð og er að skipta út pé-sé haugnum mínum fyrir makkann (ég fékk mér wintel þegar ég byrjaði í náminu en það var bara námsins vegna).

Tíminn sem maður hefur til að vera til fer dvínandi og þó er lokaverkefnið ekki komið á flug. Það á því örugglega eftir að verða erfitt að finna tíma til að blogga á þessarri önn, þótt ég eigi nú örugglega eftir að henda einhverju frá mér..

Og já.. til þeirra sem stóðu að mótmælunum í Ráðhúsinu... skammist ykkar. Ekki fyrir að mótmæla, ég er fylgjandi mótmælum. En önnur eins skrílslæti hef ég bara séð á unglingasamkomum. Vægast sagt til háborinnar skammar fyrir íslenskt samfélag (sem þó hefur nóg að skammast sín fyrir).

Kári skrifar um lækkandi verð á internet þjónustu - í Danmörku. Hversvegna er ekkert fyrirtæki hérlendis sem leitast við að hugsa EKKI eins og símafélag ? Internet þjónusta er EKKI sími. Aðgengileg bandvídd er vissulega hluti aðfanga (resources) sem þarf að borga fyrir til að geta boðið upp á netveitu. Hinsvegar má spyrja sig hvaða tilgangi það þjóni að kaupa burðarliðinn af símafélagi ? Eitt af vandamálunum hérlendis er að lögnin frá Reykjavík til Seyðisfjarðar (þar sem FarIce kemur á land) er í eigu Símans. Og þeir rukka fyrir afnot á þessarri leið í blóði og afkomendum í níunda lið. Er ekki orðið tímabært að leggjast með þunga á Samgönguráðherra og krefja hann um samgöngumannvirki í eigu ríkisins frá höfuðborginni að landtöku internetsins á Austfjörðum ? Ég bara spyr..

Ég var að lesa frétt sem hljómaði eins og snemmbær dánartilkynning HD-DVD. Það er synd eiginlega. HD-DVD spilarar geta spilað bæði HD-DVD og venjulega DVD með einum geisla, á meðan Blue-Ray spilarar þurfa tvo aðskilda geisla, einn fyrir hvort snið. Blue-Ray er líka afsprengi Sony, og í ljósi aðfara Sony í tónlistar og kvikmyndamálum vítt og breitt um heiminn, þá get ég ekki með nokkru móti hvatt fólk til að kaupa Sony vörur. Mér finnst þetta því uggvænleg þróun.

Meira síðar, óver änd át. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bakþankar Námsmanns

Höfundur

Þór Sigurðsson
Þór Sigurðsson
Höfundur er Tölvunarfræðingur B.Sc. frá Háskólanum í Reykjavík, og M.Sc. nemi á sama stað.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • Mislæg gatnamót
  • Honda Dylan 125
  • Piaggio Vespa ET4

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband