26.1.2009 | 12:05
Er fólk virkilega hissa á því að erfiðlega skulu ganga að fá almenning til þess að nota strætó ?
Þegar hrært er í strætókerfinu jafn oft og raun ber vitni, þá er ekkert skrýtið að fólk gefist upp á því að nota þennan ferðamáta.
Það eitt að þessir apar skilgreini almenningsvagna sem fyrirtæki með hagnaðarsjónarmið, þá er skrattinn þegar laus. Þegar svo borgarstjórn leyfir þessu að viðgangast átölulaust, þá er síðasti naglinn sleginn í kistuna.
Persónulega get ég ekki beðið eftir því að það komi almennileg þíða svo ég geti tekið fram hjólið.
Rekstraraðilar strætisvagna Reykjavíkur og nágrenis hafa sýnt það og sannað síðustu 5 árin að þeir eru með öllu óhæfir til að stjórna og reka almenningsþjónustu.
Það eitt getur komið Strætó til bjargar að fyrirtækið sé lagt niður í núverandi mynd, og það fært heim í hérað eins og var fyrir 20 árum. Rekið þetta eins og hverja aðra almenningsþjónustu (bókasöfn, skóla, osfrv.) sem ekki á að skila hagnaði, heldur veita þjónustu. Það á að vera langtímamarkmið að sparnaður náist í viðhaldi gatnakerfis og loftgæðum með því að fleiri nýti sér almenningssamgöngur í stað einkabifreiðar. Sparnaðurinn á ekki að koma fram í rekstri almenningssamgangnanna sjálfra !
![]() |
Ferðum strætó fækkað vegna erfiðleika í rekstri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Tölvur og tækni | Facebook
Um bloggið
Tóti Tölvukall
Færsluflokkar
Tenglar
Bloggvinir
Fólk sem ég les bloggið hjá reglulega
Bloggvinir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Vanhæf Borgarstjórn
Vanhæf Borgarstjórn
Vanhæf Borgarstjórn 
Máni Ragnar Svansson, 26.1.2009 kl. 12:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.